Almennir skilmálar

Almennir skilmálar

Almennt:

Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Helite, www.helite.is

Um notkun vefsíðu og vefverslunar Helite gilda skilmálar þessir. Með því að nota vefsíðu og vefverslun Helite, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.

Eigandi Helite.is er R. Hansen ehf. (6903191600), Arnarási 6, 210 Garðabær. VSK númer: 148468

Verð:

Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur. Helite áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.

Nákvæmni upplýsinga:

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

Afhendingartími:

Pöntunin er send beint til kaupandans eða sótt. Engin sendingarkostnaður fyrir vörur 20.000kr eða meira. Hægt er að sækja vöru til TvgXpress, Sundagörðum, sem er gjaldfrjállst en fyrir vörur undir 20.000kr greiðist 1500kr heimsendingarkostnaður þar sem það á við en 1250 kr að sækja á næstu Flytjandastöð.

Greiðslur:

Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt

Skattar og gjöld:

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Nákvæmni upplýsinga:

Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

Lög og varnarþing:

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.